29apríl

Fínasta helgi

Þá er helgin að verða búin og ótrúlegt en satt þá afrekaði mín nú bara ýmislegt um helgina Brosandi Á föstudagskvöldið fór ég á Sailesh með Gunnari dansfélaga mínum og kíkti svo smá rúnt með Heiðari eftir það, og svo fór ég bara frekar snemma að sofa vegna þess að ég var svo dugleg að mæta í vinnu á laugardeginum Brosandi En svo á laugardagskvöldið ákvað ég að skella mér bara í bíó með Heidda á Blades of Glory sem var alveg snilld Hlæjandi Og það sem var sniðugast var það að allir stóðu upp og klöppuðu í endann...þetta var bara gaman. Svo fengum við okkur að borða, rúntuðum smá og svo fór hann heim að sofa þannig að ég dró Dóra með mér á smá hring...sem var nú reyndar ekki langur en samt alveg eitt stykki laugari Hlæjandi og svo bara tókst mér að sofa út í dag, meira að segja aðeins of lengi því að nú er ég bara ennþá þreytt Hissa Svo er bara spurningin hvað maður gerir af sér í kvöld...jæja það lemur bara í ljós. Síðasti vinnudagurinn á morgun hjá Samskip og fyrsti hjá Gunnari á miðvikudaginn, er bara ekki alveg búin að átta mig á því ennþá Skömmustulegur
29. apríl 2007 klukkan 15:30
Hafdís Dögg Bragadóttir
Engin athugasemd
26apríl

Styttist...

Jæja þá er farinn að koma svona smá kvíði fyrir atvinnuskiptunum...ekki það að ég kvíði fyrir nýju vinnunni heldur bara að kveðja gömlu vinnuna, maður er orðinn hálf háður fólkinu á öllum sínum pick-up stöðum...sad but true Hlæjandi Svo hef ég svo einstaklega skemmtilega vinnufélaga líka Ullandi 18" er komin undir bimmann og hann er vell flottur sko...mín er allaveg mjög sátt Brosandi En það er svosem fátt annað að gerast hjá mér þessa dagana en mig langar í bíó...búin að hugsa um þetta mjög lengi núna og ég bara verð að fara að komast í bíó. Núna er allavega helgin framundan og mín ein með húsið um helgina því fólkið ætlar að stinga af norður, þannig að helgin verður bara ég, bimminn, pottur og bjór...cosy enough for me Glottandi

26. apríl 2007 klukkan 23:31
Hafdís Dögg Bragadóttir
Engin athugasemd
21apríl

Hćjj :D

Úff nú er ég komi heim frá Kanarí í bili...En stærstu fréttirnar eru þó þær að ég er að hætta að keyra fyrir Landflutninga...Núan er stelpan að gerast Gámaflutninga bílstjóri fyrir Flutningaþjónustu Gunnars Hlæjandi Já mín er sko komin í drauma starfið sitt bara á 19. ári vá hvað þetta verður gaman Brosandi Þann 2. maí fæ ég í hendurnar nýjan MAN sideloader þannig að nú er sko betra að passa sig í umferðinni elskurnar mínar Ullandi Jæja komið nóg í bili...bæjó

Kveðja Dísa trukkabílstjóri Ullandi
21. apríl 2007 klukkan 21:15
Hafdís Dögg Bragadóttir
Engin athugasemd
09apríl

Dísa lasarus

Jæja þá er stelpan að fara til Kanarí á morgun...alveg að springa úr spenningi Hlæjandi Haldiði að mín hafi ekki bara orðið veik í gær og svona...voða sniðugt en þetta er allt að koma núna vona ég. Kem aftur til Íslands 17. apríl og get ekki beðið eftir að byrja að vinna aftur...er það ekki soldið skrýtið ? Skömmustulegur En get nú reyndar ekki sleppt því að minnast á það að hann Óskar á afmæli í dag og bara jáhh...Óskar til hamingju með stóra daginn Glottandi Jæja þá er mín bara nánast farin í loftið...gæti verið að ég reyni að skrifa eitthvað úti en annars er ég alltaf með símann ef einhver þarf að ná í migUllandi
09. apríl 2007 klukkan 20:06
Hafdís Dögg Bragadóttir
1 athugasemd
06apríl

Jeijj byrjuđ :)

Jæja þá ætlar stelpan loksins að byrja að blogga!!! búið að taka tíma sinn en þetta gerðist þó á endanum Hlæjandi Nú sit ég bara hérna í grindó á bikini að bíða eftir að fólkið drífi sig með mér í pottinn í góða veðrinu. En nóg komið í bili...reyni að kíkja aftur sem fyrst Glottandi
06. apríl 2007 klukkan 21:37
Hafdís Dögg Bragadóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Undirsíđukubbur

Atburđarteljari